Góðan og blessaðan !
Þessi helgi var heldur betur
skrautleg. MenningarFERÐ, ekki tvö menningarkvöld,
með öllu tilheyrandi!
Föstudagur:
Við Nanna héldum á akureyri með
þeim Söndru og Jóa ;* Komum þangað eftir um 3 klst
ferð. Ég og Nanna fórum beint til Þrastar og Joels og gerðum
innrás í herbergið þeirra, sem sennilega hafði aldrei verði eins
draslaralegt..! Þröstur fór með okkur á glerártorg, við fórum
btw í fyrsta skipti í strætó
En við fórum fljótlega aftur
heim, og ég fór í sturtu og soddans.
Kvöldinu var eytt niðrí bæ, þar
sem margir voru allsvaðalega drukknir.. Þ.á.m. Nanna Margrét
Guðmundsdóttir, en hún var dregin heim um 1 leitið!! þess má
geta að hún stíflaði næstum því vaskinn í stofunni sem við sváfum í
er hún ældi heldur betur kröftuglega í hann. Árni Óla
(íþróttakennari) fékk það skemmtiega starf að þrífa vaskinn
góða.
Félagi kvöldsins var klárlega
Karen, en við áttum svona 2-3klst trúnó 
Ekki var það mikið annað
frásögu færandi frá þessu kvöld annað en það að hún Ásdís okkar
Heiðdal gerði góða hluti og kyssti Óttar a.k.a Tanksa og
busann Heimi Jón! 
Við Heimir Jón héldum heim e-ð um
4, en flestir aðrir voru niðrí bæ fram undir morgunn.
Laugardagur:
Nanna vaknaði kl. 7, ennþá
drukkin. Hún ætlaði að reyna að halda aftur inní draumaland
en hrotur Tanksa komu í veg fyrir það, en hún sofnaði þó að
lokum.
Vaknað var kl. 11, og var
ferskleikinn að drepa menn... suma meira en aðra..! Við Nanna
fórum og vöktum drengina okkar, Þröst og Joel, gerðum aðra innrás í
herbergið þeirra og skelltum okkur í sturtu. Þá var haldið
niður á Subway og verslunarleiðangur. Við vorum heldur betur
duglegar við að eyða peningunum okkar, og við vorum heldur fátækar
í enda dagsins
Við fórum að búa okkur fyrir
söngvakeppni, og hún byrjaði um 9. Pétur Ármanns stóð sig með
príði, og Nanna var án efa háværasti, ef ekki besti, stuðningsmaður
ME
Framlag VMA vann, og var það hið fínsta
lag
Eftir keppnina var haldið útá
bílastæði, og djúsinu bókstaflega sturtað í
sig. Ásdís var án efa félagi þessa kvölds, en við fórum saman
á ballið, og vorum saman mest allan tímann. Við vorum varla meira
en 15-20 mín inná ballinu. Fórum e-ð bak við hús og hittum
þar 2 gaura frá Grafarvogi, Andra1 og Andra2.. Spjölluðum við þá í
svolitla stund.
Vil ég geta þess sérstaklega í
þessu bloggi að Nanna var sjóðheit allt kvöldið, og gaf honum
Hafþóri koss eða tvo.
Þegar ballið var búið átti að
halda niður í bæ, en á leiðinni lentum við Steinar í miður
skemmtilegu atviki! ætla nú ekki að segja frekar frá því, en
það endaði með því að okkur var hrint niður brekku og lentum í
gaddavír. Og já.. ég TÝNDI nýja
símanum mínum 
Ég fattaði það reyndar ekki fyrr
en við vorum komin í 10/11, og þá fórum ég, steinar, hálfdán og
raggi risi að leita að honum en fundum hann ekki!! Ég var svo
reið að ég sagði strákunum að drulla sér niður í bæ, en ég fór
sjálf að sofa.
Sunnudagur:
Sara Dís og Snjófríður Kristín
fengu það skemmtilega hlutverk að vekja allt liðið kl. 10 !! Þær
voru ekkert búnar að sofa, og voru ennþá mjööög svo
hressar!!
Þá fór ég að pæla í því hvers
vegna það væru franskar á dýnunni sem ég svaf á.. og komst
að því að hann Ingvi hafði verið að troða frönskum í nefið á mér og
eyrun þegar hann kom heim
Rútan fór kl. 11. Ég
tróð mér í rúmið hans Þrastar og steinsofnaði.. Fórum á Subway kl.
3, svo aftur uppá vist að
soooofa!
Lögðum af stað heim milli 6 og
7. Ferskleikinn var heldur betur að fara með mann á leiðinni
heim..
Jááá helgin var suddalega
skrautleg.. djöfull er maður þroskaheftur.. !! 
Að lokum vil ég vekja athygli á
nýjasta dálki hvadahalfviti.bloggar.is --> nýji
vinurinn!!